Hlutar vefsíðunnar birtast hugsanlega ekki rétt. Það getur verið vegna þess að JavaScript hefur verið gert óvirkt í vafranum þínum eða vegna þess að vafrinn er ekki í nýjustu útgáfu eða styður ekki síðuna okkar. Virkjaðu JavaScript eða prófaðu að opna síðuna í öðrum vafra, t.d. Chrome, Firefox eða Safari. Þú getur einnig snúið þér til persónuverndarteymis notendaþjónustu Volkswagen.

Ef þú ert t.d. núverandi eða fyrrverandi starfsmaður, bakkalárnemi, meistaranemi, lærlingur, nemandi í starfstengdu háskólanámi, starfsnemi, starfsmaður á vegum starfsmannaleigu, nákominn ættingi starfsmanns, umsækjandi hjá Volkswagen AG, starfsmaður félags innan samstæðunnar eða prófunaraðili í tengslum við ráðningarsamband hjá Volkswagen AG eða félags innan samstæðunnar veitum við þér yfirsýn yfir réttindi þín samkvæmt almennu persónuverndarreglugerðinni á þessari síðu sem og upplýsingar um það hvernig þú getur neytt réttar þíns gagnvart Volkswagen AG.

Ef þú ert kaupandi bíls eða leigutaki hjá Volkswagen AG og óskar t.d. eftir upplýsingum um kaupleigu á bíl eða Car-Net/We Connect-þjónustu skaltu senda inn beiðni fyrir flokkinn Núverandi og tilvonandi viðskiptavinir.

Þú hefur rétt á að fá upplýsingar frá okkur um það hvernig vinnslu persónuupplýsinga þinna er háttað.

Hvernig getur þú nýtt þennan rétt?

Til að senda inn beiðni til okkar skaltu nota vefformið eða samskiptaupplýsingarnar hér fyrir neðan.

Þú færð upplýsingaskýrsluna innan eins mánaðar frá því að þú sendir beiðnina. Einkum eru veittar upplýsingar um grunnupplýsingar þínar, flokka persónuupplýsinga og ferli við vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við ráðningarsamband þitt við Volkswagen AG.

Þú hefur rétt á að fara fram á að við leiðréttum rangar eða ófullnægjandi persónuupplýsingar um þig.

Hvernig getur þú nýtt þennan rétt?
Til að senda inn beiðni til okkar skaltu nota vefformið eða samskiptaupplýsingarnar hér fyrir neðan.

Þú hefur rétt á að fara fram á að upplýsingum um þig sé eytt, að uppfylltum skilyrðum 17. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Þú getur þá til dæmis farið fram á að upplýsingum um þig sé eytt ef þær eru ekki lengur nauðsynlegar í þeim tilgangi sem lá að baki söfnun þeirra. Þú getur einnig farið fram á að upplýsingum sé eytt ef vinnsla okkar á upplýsingunum byggist á samþykki þínu og þú dregur samþykki þitt til baka.

Hvernig getur þú nýtt þennan rétt?
Til að senda inn beiðni til okkar skaltu nota vefformið eða samskiptaupplýsingarnar hér fyrir neðan.

Þú hefur rétt á að fara fram á að vinnsla persónuupplýsinga þinna verði takmörkuð þegar skilyrði 18. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar eiga við. Um slíkt er meðal annars að ræða þegar þú vefengir að persónuupplýsingar þínar séu réttar. Þú getur þá farið fram á að vinnsla persónuupplýsinga þinna sé takmörkuð þar til staðfest hefur verið að þær séu réttar.

Hvernig getur þú nýtt þennan rétt?
Til að senda inn beiðni til okkar skaltu nota vefformið eða samskiptaupplýsingarnar hér fyrir neðan.

Svo fremi sem vinnslan fer fram á grundvelli lögmætra hagsmuna Volkswagen AG eða þriðja aðila, í þágu almannahagsmuna eða við beitingu opinbers valds átt þú rétt á að andmæla vinnslu persónuupplýsinga þinna vegna sérstakra aðstæðna þinna. Ef þú andmælir vinnslu persónuupplýsinga þinna biðjum við þig að tilgreina ástæðurnar fyrir andmælunum.
Þú hefur jafnframt rétt á að andmæla vinnslu persónuupplýsinga í þágu beinnar markaðssetningar. Þetta á einnig við um gerð persónusniðs, að því marki sem hún tengist beinni markaðssetningu.

Hvernig getur þú nýtt þennan rétt?
Til að senda inn beiðni til okkar skaltu nota vefformið eða samskiptaupplýsingarnar hér fyrir neðan.

Ef vinnsla persónuupplýsinga byggist á samþykki eða samningi og er jafnframt sjálfvirk hefur þú samkvæmt 20. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar rétt á að fá persónuupplýsingar þínar á skipulegu, algengu, tölvulesanlegu sniði og senda þær til annars vinnsluaðila.

Hvernig getur þú nýtt þennan rétt?
Til að senda inn beiðni til okkar skaltu nota vefformið eða samskiptaupplýsingarnar hér fyrir neðan.

Ef vinnsla persónuupplýsinganna byggist á samþykki hefur þú hvenær sem er rétt á að draga samþykki þitt til baka með framvirkum hætti, þér að kostnaðarlausu.

Hvernig getur þú nýtt þennan rétt?
Til að senda inn beiðni til okkar skaltu nota vefformið eða samskiptaupplýsingarnar hér fyrir neðan.

Þú hefur jafnframt rétt á að leggja fram kvörtun hjá eftirlitsyfirvaldi (t.d. Persónuvernd) vegna vinnslu okkar á persónuupplýsingum þínum. Að öðru leyti getur þú látið reyna á rétt þinn fyrir dómstól á sviði einkamálaréttar.

Tengiliður þinn: Persónuverndarskrifstofa fyrir upplýsingar um starfsmenn Volkswagen AG

Póstfang:         Netfang:
Póstfang: Volkswagen AG Brieffach 1862 Berliner Ring 2 38440 Wolfsburg
ÞÝSKALANDI
Netfang: dsgvo-beschaeftigtendaten@volkswagen.de