Þegar þú smellir á þennan tengil ferðu út af síðu Volkswagen AG. Volkswagen AG gerir ekki tilkall til síðna þriðju aðila sem vísað er í með tenglinum og ber ekki ábyrgð á efni þeirra. Volkswagen hefur engin áhrif á söfnun, vistun eða vinnslu upplýsinga frá þér á þessari síðu. Nánari upplýsingar um þetta koma fram í yfirlýsingu um persónuvernd hjá þeim sem heldur ytri vefsíðunni úti.
Hafir þú alla jafna ekki gert samning við Volkswagen AG og ert t.d. viðtakandi fjárstyrkja, gestur, fulltrúi samtaka sem starfa ekki á okkar vegum, þátttakandi í vinningaleikjum, áhrifavaldur sem starfar ekki á okkar vegum, styrkþegi, prófunaraðili, sölumaður sem starfar ekki á okkar vegum eða aðdáandi getur þú fengið upplýsingar um það á næstu síðu hvernig þú getur nýtt réttindi þín samkvæmt almennu persónuverndarreglugerðinni gagnvart Volkswagen AG.
Þessum flokki tilheyra einnig skráðir einstaklingar sem gegna sérstöku hlutverki í tengslum við lagaleg mál og skuldamál (t.d. aðilar að lagalegum ágreiningi, fulltrúar yfirvalda sem vinna með opinber mál, lögbókendur, lögmenn, fulltrúar lögbókenda, mælingastofur, kaupendur/seljendur fasteigna, lóðarleigutakar og -salar, leyfisþegar og -veitendur, leigutakar og leigusalar).
Þú hefur rétt á að fá upplýsingar frá okkur um það hvernig vinnslu persónuupplýsinga þinna er háttað.
Hvernig sendi ég inn beiðni?
Hægt er að senda inn beiðni til Volkswagen AG eftir mismunandi leiðum, allt eftir lagalegum forsendum. Til að senda inn beiðni um aðgang að upplýsingum skaltu nota vefformið.
Hvernig fara auðkenning og sannvottun fram?
Um leið og beiðni þín berst reynum við að bera kennsl á þig með kerfum okkar. Ef það tekst ekki strax sendum við þér beiðni um að auðkenna þig. Þú hefur þá fjórar vikur til að auðkenna þig með PostIdent-þjónustu samstarfsaðila okkar Deutsche Post. Frekari upplýsingar er að finna á:
Ef þú hefur sent inn beiðni varðandi bifreiðargögn þarf sannvottun að fara fram. Þú þarft þá að leggja fram viðeigandi gögn til staðfestingar, eins og verksmiðjunúmer (grindarnúmer) bílsins og staðfestingu á umráðum yfir bílnum.
Hvað tekur upplýsingaöflunin langan tíma?
Það tekur að minnsta kosti einn mánuð og í mesta lagi þrjá mánuði að vinna úr beiðni eftir að hún berst.
Hvernig fæ ég svar?
Þegar unnið hefur verið úr beiðni þinni færðu svar annaðhvort á stafrænu formi eða bréfleiðis.
Verksmiðjunúmerið (grindarnúmerið) er alþjóðlegt, staðlað 17 stafa raðnúmer sem auðkennir vélknúið ökutæki með ótvíræðum hætti. Númerið kemur annars vegar fram í skráningarskírteininu. Það er síðan einnig að finna á mismunandi stöðum á bílnum, yfirleitt í vélarrýminu eða hægra megin á bílnum. Út frá verksmiðjunúmerinu og umráðatímanum sem þú gafst upp leitum við að persónuupplýsingum þínum í kerfum Volkswagen AG til þess að útbúa upplýsingaskýrslu í samræmi við almennu persónuverndarreglugerðina. Vinsamlegast sendu eingöngu inn beiðnir sem snúa að fólks- eða atvinnubílum sem eru framleiddir af Volkswagen.
Heimild: Innanríkisráðuneyti sambandslýðveldisins Þýskalands - Bundesdruckerei GmbH
Myndunum hér að ofan hefur verið breytt. Heimildin vísar til upprunalega skjalsins án yfirstrikana.
Verksmiðjunúmerið kemur fram í lið „E“ í skráningarskírteininu.
Umráðatíminn sem er tilgreindur er sá tími sem þú vilt fá yfirlit yfir persónuupplýsingar fyrir sem tengjast verksmiðjunúmeri (grindarnúmeri) bílsins þíns. Þú þarft að leggja fram viðeigandi gögn til sönnunar á því að þú hafir haft umráð yfir bílnum á þessu tímabili.
Hægt er að hlaða upp allt að 5 skrám. Til staðfestingar á umráðatíma tekur Volkswagen AG við eftirfarandi gögnum:
- Skráningarskírteini
- Staðfesting á umráðum frá opinberum skráningaraðila
Ef þessi gögn sem lögð eru fram til sönnunar eru ekki gefin út á þitt nafn þurfum við að fá frá þér yfirlýsingu um samþykki frá umráðamanni bílsins sem er nafngreindur í skjölunum sem staðfesta umráð. Viðkomandi eyðublöð fyrir útlán á bíl er að finna á niðurhalssvæðinu.
Þú átt rétt á að strika yfir upplýsingar í skjölum sem lögð eru fram til auðkenningar og sannvottunar ef notendaþjónusta Volkswagen AG þarf ekki á þeim að halda til að staðfesta hver þú ert og/eða að þú hafir umráð yfir bílnum. Í upplýsingablaðinu um hvernig strika skal yfir upplýsingar, sem hægt er að nálgast á niðurhalssvæðinu, er að finna leiðbeiningar um hvaða upplýsingar má strika yfir.
Í vefformi okkar fyrir beiðni um aðgang að upplýsingum (privacy.volkswagen.com/request) getur þú, með því að gefa upp Volkswagen ID-notandareikninginn þinn, samkvæmt 15. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar fengið upplýsingar um hvaða persónuupplýsingar þínar eru skráðar í miðlæga Volkswagen ID-notandareikningnum og þeim stafrænu þjónustum sem honum tengjast (t.d. We Park, Volkswagen Connect). Til þess þurfum við að fá frá þér netfangið sem þú skráðir fyrir Volkswagen ID-notandareikninginn. Það er notað fyrir svokallaða „double-opt-in“-aðferð. Hún felur í sér að sendur er tölvupóstur á tilgreint netfang þar sem beðið er um staðfestingu. Er þá ekki unnið úr beiðni þinni fyrr en þú hefur smellt á viðkomandi staðfestingartengil. Athugaðu að tengillinn er aðeins virkur í 48 klukkustundir. Ef ekki fæst staðfesting er Volkswagen ID-notandareikningurinn ekki notaður til að finna persónuupplýsingar þínar.
Ef þú vilt gefa upp fleiri Volkswagen ID-notandareikninga skaltu senda inn aðra beiðni um aðgang að upplýsingum.
Athugaðu að þér stendur einnig til boða að skoða, breyta eða eyða persónuupplýsingum þínum sem unnið er með í tengslum við stafræna þjónustu á vegum Volkswagen AG á eigin spýtur Eftirfarandi þjónustur bjóða upp á þessa möguleika:
- Volkswagen ID-vefgáttin ásamt þeim stafrænu þjónustum sem henni tengjast (vwid.vwgroup.io)
- Car-Net (volkswagen-carnet.com)
Þú hefur rétt á að fara fram á að við leiðréttum rangar eða ófullnægjandi persónuupplýsingar um þig.
Hér getur t.d. verið um að ræða rangfærslur í grunnupplýsingum þínum og þarf þá yfirleitt ekki að leggja fram frekari gögn til sönnunar þegar þær eru leiðréttar.
Ef þú vilt breyta nafninu þínu, t.d. vegna hjónabands, þarf að leggja fram gögn því til sönnunar.
Hvernig getur þú nýtt þennan rétt?
Til að senda inn beiðni til okkar skaltu nota vefformið eða samskiptaupplýsingarnar hér fyrir neðan.
Þú hefur rétt á að fara fram á að upplýsingum um þig sé eytt, að uppfylltum skilyrðum 17. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Þú getur þá til dæmis farið fram á að upplýsingum um þig sé eytt ef þær eru ekki lengur nauðsynlegar í þeim tilgangi sem lá að baki söfnun þeirra. Þú getur einnig farið fram á að upplýsingum sé eytt ef vinnsla okkar á upplýsingunum byggist á samþykki þínu og þú dregur samþykki þitt til baka.
Við mælum með því að þú sendir inn beiðni til að nýta rétt þinn til eyðingar eftir að þú hefur fengið yfirlit yfir persónuupplýsingar þínar. Í þessu tilviki skaltu senda okkur beiðni um eyðingu og láta fylgja með númer fyrri beiðni um aðgang að upplýsingum.
Ef þú hefur ekki sent inn beiðni um aðgang að upplýsingum skaltu senda okkur skýringu á eyðingarbeiðninni, ef mögulegt er tiltekinni vinnslu, ásamt upplýsingum um þig (að minnsta kosti fornafn, eftirnafn, heimilisfang og fæðingardag).
Hvernig getur þú nýtt þennan rétt?
Til að senda inn beiðni til okkar skaltu nota vefformið eða samskiptaupplýsingarnar hér fyrir neðan.
Þú hefur rétt á að fara fram á að vinnsla persónuupplýsinga þinna verði takmörkuð þegar skilyrði 18. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar eiga við. Um slíkt er meðal annars að ræða þegar þú vefengir að persónuupplýsingar þínar séu réttar. Þú getur þá farið fram á að vinnsla persónuupplýsinga þinna sé takmörkuð þar til staðfest hefur verið að þær séu réttar.
Hvernig getur þú nýtt þennan rétt?
Til að senda inn beiðni til okkar skaltu nota vefformið eða samskiptaupplýsingarnar hér fyrir neðan.
Svo fremi sem vinnslan fer fram á grundvelli lögmætra hagsmuna Volkswagen AG eða þriðja aðila, í þágu almannahagsmuna eða við beitingu opinbers valds átt þú rétt á að andmæla vinnslu persónuupplýsinga þinna vegna sérstakra aðstæðna þinna. Ef þú andmælir vinnslu persónuupplýsinga þinna biðjum við þig að tilgreina ástæðurnar fyrir andmælunum.
Þú hefur jafnframt rétt á að andmæla vinnslu persónuupplýsinga í þágu beinnar markaðssetningar. Þetta á einnig við um gerð persónusniðs, að því marki sem hún tengist beinni markaðssetningu.
Hvernig getur þú nýtt þennan rétt?
Til að senda inn beiðni til okkar skaltu nota vefformið eða samskiptaupplýsingarnar hér fyrir neðan.
Ef vinnsla persónuupplýsinga byggist á samþykki eða samningi og er jafnframt sjálfvirk hefur þú samkvæmt 20. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar rétt á að fá persónuupplýsingar þínar á skipulegu, algengu, tölvulesanlegu sniði og senda þær til annars vinnsluaðila.
Hvernig getur þú nýtt þennan rétt?
Til að senda inn beiðni til okkar skaltu nota vefformið eða samskiptaupplýsingarnar hér fyrir neðan.
Ef vinnsla persónuupplýsinganna byggist á samþykki hefur þú hvenær sem er rétt á að draga samþykki þitt til baka með framvirkum hætti, þér að kostnaðarlausu.
Hvernig getur þú nýtt þennan rétt?
Til að senda inn beiðni til okkar skaltu nota vefformið eða samskiptaupplýsingarnar hér fyrir neðan.
Þú hefur jafnframt rétt á að leggja fram kvörtun hjá eftirlitsyfirvaldi (t.d. Persónuvernd) vegna vinnslu okkar á persónuupplýsingum þínum. Að öðru leyti getur þú látið reyna á rétt þinn fyrir dómstól á sviði einkamálaréttar.
Tengiliður þinn: Persónuverndarteymi notendaþjónustu Volkswagen
ÞÝSKALANDI Sími: +49 (0) 5361-9-15010 +49 (0) 800-8932836724889 (0800-VWDATENSCHUTZ) Alþjóðlegt símanúmer: 00800-8932836724889 (00800-VWDATENSCHUTZ) Netfang: privacy@volkswagen.de